Halló, er ennþá lifandi!

Æ elskurnar mínar,

Sorry elskurnar mínar, ég hef ekki nennt að skrifa neitt síðan í Apríl eða eitthvað!

Ég hef mikið verið að hugsa um að breyta þessu lífi mínu úr því sem er í eitthvað sem betra er.

Ég er núna mest á facebook, ef þið viljið vita um mig, þá dröslið ykkur á facebook!


Spring Cleaning.....

Jæja, búinn að druslast til að gera vorhreingerningarnar á svefnherbeginu, breytti því enn einu sinni. Þegar ég upplifi svona daga þá þakka ég fyrir að vera einn, sem sagt ekki í í sambandi.

Eins og ég hef sagt þá er ég óttalega skrítinn og upplifi mig sjálfann eða sjálfa sem öðruvísi einstakling. Ég hef lengi dreymt um að verða ástfanginn eða ástfangna af þessum "special" maka. En ég vil ekki ást, ég hef oft fengið "offers" en ég hef alltaf bakkað, svo ég held að ég einn af þessum sem munu ganga lífsins veg einn!

Jæja, ætla hætta núna og horfa á "Kingdom Hospital"!


Ósköp getur maður verið ruglaður....

Klukkan 23:38 í gærkvöldi, hvað helduru að ég hafið gert. Ég fór að taka til í stofunni. Hún er voðalega fín og flott núna en ég stórlega efast um að hún haldist hrein lengi, "come on" ég er eftir allt saman ennþá ég, he he!

Ég sat og var að horfa á "soap" og gat ekki hætt að horfa á allt ruslið í kringum mig, amma hefði orðið brjáluð! Svo að loks stóð ég upp og byrjaði að týna upp rusl og tók svo hillurnar og dustaði þær og sópaði svo gólfin! Voða fínt og flott núna og já, tók niður jólaskrautið, jólaljósin úr stofuglugganum líka, það er bara apríl sko. he he

Ég hef undanfarið verið mikið að pæla í skólamálum, hvort að maður ætti að læra eitthvað, en hvað? Ég hef áhuga á tónlist, ætti ég kannski að læra eitthvað með tónlist og því um líkt? Ég hef gaman að leiklist, ætti ég kannski að skoða það? Skrifstofumál? Tölvur? Æ, ég veit það ekki!


Þegar ég var búinn til....

Þegar ég var búinn til, þá gerðist eitthvað!

Ég er einn, aleinn! Þannig hef ég það alveg ágætt svo lengi sem ég hef tónlistina mína og sjónvarpsefnið mitt. Ég var á Kanarý í heilann mánuð í febrúar og hef aldrei verið jafn aumingjalegur, ég er tiltölulega lokuð manneskja en þarna lokaðist ég alveg, grét uppúr þurru. Fékk svona smá forsmekk af því hvernig lífið verður eftir að amma og afi eru farin. Pabbi vinkonu minnar var að deyja ekki alls fyrir löngu og það fékk mig til að hugsa um að tíminn sem ég hef með afa og ömmu er að styttast!

Eins og ég var opinn krakki þá er ég alveg rosalega lokaður fullorðinn einstaklingur. Ég tala við vini mína í vinnunni annars myndi ég ábyggilega ekki eiga neina vini! Þegar ég er ekki að vinna þá held ég mér bara heima og lifi í allt öðrum, heimi fullur af stjörnuhliðum, ástum og gervifjölskyldum! Svo stundum sit ég bara og hlusta á Celine, Bette, Billie Jo og læt tilfinningarnar líða yfir mig.

Ég vildi óska þess að ég gæti farið aftur og verið aftur barn. Það er allt í rugli núna. Líkami minn er í "total shutdown mode", Ristillinn er að byrja að bila aftur, beinverkir alla daga og hausverkur! Ég hef aldrei átt eins auðvelt með að gráta síðan að ég kom heim frá kanarý! Þessi ferð átti að gera mér gott en gerði frekar það öfuga! Nína vinkona hefur verið þrjósk og komið nokkrum sinnum í heimsókn, ekki misskilja mig ég elska hana út í gegn en eins og ég er að verða verri og verri, búinn að byggja svolleiðis múrvegg í kringum mig, ég verð bara pirraður og reiður, mest út í sjálfann mig fyrir að hugsa svona!

Síðast þegar ég heyrði þá er á afi á batavegi, ég er alveg afskaplegar glaður með það! Vonandi fer amma þá að hugsa betur um sig, fyrst að afi er að verða betri! Ég varð svoldið hræddur um hana, þar sem hún hætti að hugsa um sig yfir veikindin hans afa. Ég vissi að mamma var ekki tilbúin að taka afa frá okkur! Ég þakka henni kærlega fyrir það, þó að dagurinn í dag sé einn af þessum dögum sem mamma er lágt skrifuð hjá mér!

Mamma dó fyrir næstum 20 árum síðan, myrt af einhverjum djöfulsins helvítis andskotans hálvita sem ég vona muni aldrei upplifa hamingjusaman dag það sem eftir er! Samt af einhverjum ástæðum beinist alltaf reiði mín til mömmu, ég öskra á hana og mölva myndir af henni! Ég óska þess oft að ég hefði fengið að fara með henni núna er það meira að lifa fyrir ömmu, en vona nú samt að ég lifi ekki mikið lengur eftir að hún fer.

Hún amma mín er stuðningurinn minn, bakhjarl. Hefur alltaf verið þarna! Hún stóð við bakið á mér líka þegar ég og hún áttum erfitt saman, Ég get ekki hugsað mér að vera til án hennar! Systkyni mömmu eru alveg ágæt en ég á ekkert með þeim, þau horfa á mig sem það eina sem er eftir mömmu, Ég er ekki mamma, ég er krakkagrislingurinn hennar, sá sem gat jafnauðveldlega gert hana bálreiða sem og fjarska glaða! Ég held að það sé ekki mikill munur á mér og myndaramma þegar að systkynum mömmu er komið!

Pabbi er pabbi, alveg ágætur kall:) En ég kann ekkert, get ekkert þegar að honum er komið! Þegar í föðurfjölskyldu mína er litið þá er það Linda frænka og Anna Mamma sem ég get eitthvað talað við!

Þetta er nóg í bili!


Þessi sárans Jól

Ég er í þessarri herrans down-sveiflu, ekki það að mér líði ílla bara mér finnst allt frekar grátt og leiðinlegt. Ég er með pirringinn rétt fyrir neðan yfirborðið og hann poppar upp á 15 sek. fresti.

Það er sama að segja um jólin eins og hefur verið til fjölda ára, ég finn engann mun á 24 Desember og 12 Febrúar.

Mér líður illa, bakið altaf að stífna upp, fæturnir eru sárir og þreyttir, með herrans hauseverk og nú hefur hægri höndin sagt sitt, ég flaug fram fyrir mig í þar síðustu viku og stöðvaði fallið með höndunum  og þess vegna er nú höndin svona. Má þakka fyrir að hún brotnaði ekki þar sem ég er nú "HUGE" maður og höndin er bara pínulítil, ja.. miðað við restina af mér.

Þessi jól verð ég hjá ömmu og afa, var hjá pabba og önnu í fyrra. En mig hlakkar ekkert til. Mig langar ekki að halda uppá þessi herrans jól. Elska ömmu og familiu, þetta hefur ekkert með þau að gera en mig langar bara ekki lengur til að gera nokkuð skapaðann hlut, ég varla nenni að horfa þættina mína eins og málin eru í dag.

Ef einhver segir "þunglyndi", þá teygji ég mig út úr tölvunni og lem hann. 

 


Enn sá hausverkur!

Gærkvöld og dagurinn í dag voru erfiðir tímar. Ég fór að hugsa of mikið og fór að hugsa um að enda þetta allt saman en í hvert sinn sem ég var að dragast alveg niðrá botn þá fór ég að hugsa um hvað ég er að gera og ætla mér að gera og vá mér leið miklu betur. Ég veit vel að ég mun ekki getað eignast börn þannig lagað sé, en hver segir að ég geti ekki fengið leigumóður, ættleitt eða þá að framtíðarmaki minn muni ekki eiga börn fyrir. Svo mikið er víst að vinir mínir eiga börn í kringum sig og þegar þau börn eignast sín börn, þá kannski fæ ég að vera amma nokkurra þeirra Tounge

Argggg... Smá Púst

Mér líður nokkuð vel andlega í dag, þó að líkamlega þá er ég að drepast í beinverkjum. Ég á orðið erfitt með að beygja mig. Svo var ég líka þetta ógurlega þreyttur í dag, ekki fyndið Woundering

Ég elska bæði móður og föður fjölskyldur mínar, þó að við eldum oft grátt með hvort öðru, þá sérstaklega ömmurnar. Alls ekki taka þessu illa elskurnar mínar, þetta er ekki til pabba eða ömmu karenar eða Hafna Más eða Önnu frænku.Nú þarf ég bara aðeins að blása! Ok Wink

"HVERN ANDSKOTANN ÞYKIST ÞIÐ VITA UM MIG! VINIR MÍNIR VIRÐAST ÞEKJA MIG 100 SINNUM BETUR EN NOKKURN TÍMANN MÍNIR ÆTTINGJAR. ÉG HATA, HREINLEGA HATA HVAÐ FÓLK TEKUR SEM ÞUNGLYNDI EÐA DEPURÐ ÞEGAR MAÐUR ER AÐ REYNA AÐ LIFA SÍNU LÍFI FYRIR SJÁLFA SIG. GUÐ EINN VEIT AÐ ÉG MÆTTI VEL VERA DRULLUÞUNGLYNDUR EFTIR ALLT SEM ÉG HEF GENGIÐ Í GEGNUM OG ÞIÐ VITIÐ EKKI HELMINGINN AF ÞVÍ SEM ÉG HEF GENGIÐ Í GEGNUM. HVE MARGA MORGNA HAFIÐ ÞIÐ VAKNAÐ OG PÆLT Í ÞVÍ AÐ SKERA YKKUR Á PÚLS SVO AÐ ÞIÐ ÞURFIÐ EKKI AÐ FARA Í VINNUNNA. EÐA HVE OFT HAFIÐ ÞIÐ PÆLT Í ÞVÍ AÐ STINGA HAUSNUM YKKIR Í DJÚPSTEIKINGARPOTTINN VEGNA PIRRINGS. í ÞESSU PÆLDI ÉG MIKIÐ Í ÞAR TIL AÐ ÉG BYRJAÐI AÐ OPNA AUGUN FYRIR ÞVÍ HVAÐ ER Í RAUN AÐ. MÉR HEFUR EKKI LIÐI BETUR ANDLEGA SÍÐAN ÉG VAR KRAKKI OG HVAÐ HELDUR FÓLK AÐ SÉ AÐ BÖGGA MIG, ÞUNGLYNDI! EITT GET ÉG SAGT AÐ ER ÉG GIFTI MIG, ÞÁ VERÐUR KRAFTAVERK EF ÉG BÍÐ EINHVERJUM ÆTTINGJA Í BRÚÐKAUPIÐ"

Ahh....gott að fá að pústa pínu LoL líður mun betur núna! Ég elska lífið og tilveruna! Ég á mér mjög bjarta framtíð framundan og lífið brosið við mér! Og á morgun verður lífið ennþá betra!


Another day, another "króna"!

Þessi dagur byrjaði vel eða þannig séð, ég var auðvitað afskaplega þreytt er ég vaknaði en ég náði mér nú fljótt uppá strik. Ég vann á fullu til að verða hálf tíu í morgun en þá fór ég í bílatíma, þann fimmta Wink. Svo mætti ég aftur í vinnuna rétt um korter yfir tíu. Venjulega eru þriðjudagar mjög slappur dagar en það var ekki beint svo með daginn í dag, en ég reddaði mér alveg skoLoL

Ég er ekki enn hættur að drekka kók en ég er hættur að drekka kók í vinnunni. Hef ekki drukkið kók í vinnunni hvorki í dag né í gær JeiiiiiCool

Ég var mikið að hugsa í dag um hvernig ég á að fara að því að koma fram hreint við ömmu og afa, segja þeim hvað ég er að gera og fara að gera. Á ég að skrifa henni bréf eða á ég að hundskast mér suður. Ég veit að ákveðin frænka mín brennur í skinninu eftir að ég segji henni allt.


Nýr dagur, nýjar minningar

Í dag, eh reyndar í gær núna, þá opnaði ég mig fyrir annarri manneskju og mér líð nokkuð vel eftir á. Enda kvíður mér aðallega fyrir að opna mig fyrir ömmu og afa.

Ég hef tekið eftir því að dagarnir eru farnir að vera miklu léttari, auðveldara að "lifa" þá afTounge ef svo má að orðum komast. Ég hef ekki fengið myrka hugsun síðan að ég talaði við hana Árný mína. Lífið er til þess að lifa því og ég er sko ekkert að fara.



Nýjar myndir!!!

Ég er búin að setja inn nýjar myndir af mér!

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband