From being XXXL Man to becoming a Gorgeus being!

Ég er staðráðin í að taka mig á og takast á við lífið með fullum krafti. Ég ætla sko ekki að gefast upp eða leyfa nokkurri manneskju að stoppa mig. Ég sé lífið mun bjartara í dag en ég hef gert í nokkuð langann tíma.

Ég sé mig sem sjálfa mig í fyrsta skipti. Svo virðist sem pabbi hafi séð mig líka. Hann og Anna mamma hafa víst talað saman um mig og hvað ég er. Ég varð hissa en samt glaður, pabbi sér mig Blush Ég ætti kannski að taka kallinn í sátt og setjast niður með honum, bara passa að það sé ekki bolti í kassanum á meðan Grin. Alveg ótrúlegt hvað fólk sér þegar maður er að reyna að fela það.

Þannig að nú er það bara móðurfjölskyldan sem ég þarf að vinna mig uppí kjark til að ganga hreint til dyranna með. Ég veit að ég sagði að enginn muni stöðva mig, en þau eru amma mín, afi minn og frændsystkyni mín, þau skipta mig miklu máli. En ef satt skal segja þá er ég tilbúin að gera það sem ég ætla að gera með eða án þeirra, þó auðvitað væri það allt saman mikið auðveldara með þeirra stuðning.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gerða Kristjáns

Luv ya gorgeous
Hlakka til að hitta þig í kvöld

Gerða Kristjáns, 19.10.2007 kl. 06:52

2 Smámynd: Árný Sesselja

Þú átt meira en þig grunar.  Opnaðu hjarta þitt og leyfðu því að koma....

Þú veist hvar eiginkonur nr 2 as in ME og nr 3 as is Gerða erum...

Hlakka til að sjá þig í kvöld...

Hugs and lots of kisses

Árný Sesselja, 19.10.2007 kl. 12:44

3 identicon

hæ hæ sendu mér mailið þitt ég bara fynn það hvergi

Anna ósk (IP-tala skráð) 19.10.2007 kl. 19:51

4 Smámynd: .

Lífið er svo mikið auðveldara ef maður segir öllum satt .... líka sjálfum sér. Gangi þér allt í hag.......  Árnýjarmamma.

., 22.10.2007 kl. 09:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband